Auglýsing

Textareitur

Linkar á heimasíđur strákanna sem eru međ mér hérna úti eru hérna fyrir neđan.

Páska Roadtrip

30. mars 2008 klukkan 22:15

Það hefur margt gerst síðan ég skrifaði hérna seinast og ég ætla ekki að telja upp það sem hefur átt sér stað, nema það mikilvægasta. 

Kata systir kom í heimsókn um miðjan mars og var hér í góða 4 daga og áttum við virkilega góðan tíma saman. Hún kom hingað til að taka þátt í ráðstefnu og gisti hjá mér. Við drukkum mjög samkynhneigða kokteila á Bar með utsýni yfir Gautaborg og fögnuðum próflokum hjá mér. Kata reddaði mér inn á sýninguna og fékk ég fullt af bæklingum sem nýttust í páskaferðalaginu sem er nefnt hér að neðan. 

Um páskana, eða frá 16-29.mars þá fórum ég, Beggi og Jónsi í snilldar Roadtrip um Eistland, Lettland, Litháen, Hvíta-Rússland og Pólland. Við keyptum '95 árgerð af Saab 9000 og keyrðum á honum samtals 3.500 km, betri lýsing á ferðaplaninu er á heimasíðu Begga, http://www.123.is/bergur/ Ferðin var alveg mögnuð og voru allir mjög sáttir í ferðalok. Ég setti inn myndir frá ferðinni, allt of erfitt að skrifa ferðasögu hérna, vona að þið hafið gaman að skoða myndirnar. Ég reyndi að skrifa smá texta undir myndirnar til skýringa.

Jæja, ný skólaönn hefst á morgun, hún verður vonandi stutt því við erum að vonast til að geta byrjað á lokaverkefninu okkar sem fyrst og sagt okkur úr þessum áföngum, en þetta kemur í ljós bráðum.

Þangað til seinna, góða nótt, það er alltaf gaman að fá komment, jafnvel frá aðdáendum Sprengjuhallarinnar.

Björn Harđarson
8 athugasemdir

Holur innan hausinn

29. janúar 2008 klukkan 21:25

Allt í einu tekur maður upp á því að skrifa inn á bloggið. Um jólinn var ég búinn að búa til í hausnum á mér blogg þar sem ég tók fyrir hina viðurstyggilega leiðinlegu hljómsveit Sprengjuhöllina, sú færsla innihélt orð sem ég hef ekki sagt lengi, eða frá því ég var í tölvutímum hjá Sveittu Stefáns. Þessi hljómsveit er náttúrlega bara djók, og versta er að heyra útvarpsmenn á borð við Óla Palla brownnosa þessa sveit og tala um hana eins og hún sé næsta spilverk þjóðanna eða nýdönsk. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar heyrði lag með Sprengjuhöllinni var: Ógeðslega er baggalútur orðinn leiðinlegur, einföld lög með alveg fáránlega lélegum hálf-rím textum, "nú er komið haust, þó að blási vindar laust", ég meina er einhver með kúbein hérna.

Fólk heldur kanski núna að ég sé í rosalega vondu skapi, en sú er ekki rauninn, ég er bara í venjulegu skapi. Annars gengur bara vel hjá mér, nóg að gera í skólanum svo er leit að lokaverkefni hafin og verið að skipuleggja ferð um páskana. 

Svona þegar maður tekur allt í einu upp á því að blogga þá eru allar hugmyndirnar sem voru í hausnum farnar eitthvað annað.

Björn Harđarson
7 athugasemdir

Innflutningsparty

11. nóvember 2007 klukkan 20:49

Ég er búinn að fjárfesta í þeim húsgögnum sem ég þurfti og íbúðin komin í fínt lag. Ég fékk gefins sófa, keypti stofuborð og sjónvarpsborð á 450SKR og stofustól á 150SKR. Ótrúlegt hvað hægt er að kaupa ódýr notuð húsgögn. Með aðstoð Jóa And og saabsins hans þá tókst mér að kaupa þetta dót og koma öllu fyrir í íbúðinni.

Til þess að fagna innflutningi mínum bauð ég liði hingað í gær og hélt innflutingsparty. Var það bara vel heppnað og skemmti fólk sem almennt mjög vel. Ég setti inn nokkrar myndir frá partyinu á myndasíðuna.

Annars er allt gott að frétta af mér, skólinn er mjög áhugaverður og það fer reyndar að styttast í að ég fari heim í jólafrí. Kem 20.des og verð í fríi alveg fram til 20.jan, vona að það verði snjór svo hægt sé að fara á skíði.

Hef þetta ekki lengra í bili.

Björn Harđarson
9 athugasemdir

Göteborg

30. október 2007 klukkan 16:33

Langt síðan ég skrifaði hérna seinast, splittar ekki diff þetta er algjör lúði. Alltaf hressandi að byrja á tilvitnun í Sódómu. Staðan er sú að ég er kominn aftur til Gautaborgar til að taka nokkra áfanga, ég verð hér að öllum líkindum fram til mars/apríl, eftir það mun ég gera lokaverkefni.

Á leiðinni út stoppaði ég hjá Birki bekkjarfélaga í Köben og við skelltum okkur á tónleika með Muse, einnig hittum við Begga og félaga hans úr HÍ sem komu með á tónleikana. 

Það er gott að vera kominn aftur til Gautaborgar, flest allir gömlu félagarnir eru hérna, þó vantar nokkra gullmola. Ég setti inn myndir af nýju íbúðinni minni, er kominn með tveggja herbergja íbúð, þó að ég þurfi ekki svona mikið pláss. Ég þarf að fara að redda mér húsgögnum svo íbúðin verði ekki svona tóm. Ég var að djóka við félaga mína sem eru í litlum eins-herbergja íbúðum að ég væri að spá í að læsa bara öðru herberginu hjá mér svo ég þyrfti ekki að þrífa það.

Ég gleymdi einu á myndunum, það er að taka mynd af útsýninu. Ég er með flott útsýni m.a. yfir tívolíið Liseberg. Ég skrifa örugglega eitthvað meira seinna, en þetta er nóg í bili.

Björn Harđarson
5 athugasemdir

Kominn heim

07. júlí 2007 klukkan 11:38

Þá er í kominn heim til Akureyrar, að vísu kom ég um seinustu helgi. Þetta ár í Californiu var alveg magnað, miklu betra en ég hefði þorað að vona. Ég er strax byrjaður að vinna og verð hjá Vgk-Hönnun í sumar og er búinn með eina viku og lýst bara mjög vel á þetta. Ég verð að vinna þar alveg fram í Oktober og þá mun ég aftur fara til Svíþjóðar, en það verður ekki lengi. 

Ég stoppaði 2 daga í Rvk á leiðinni heim og skellti mér í flugferð með Axel í kringum Snæfellsnesið með lendingu á Rifi, alveg mögnuð ferð. Ég var á ferðalagi um Californiu með mömmu og kötu áður en ég kom heim og var sú ferð alveg mögnuð. Ég setti inn fleiri myndir frá þeirri ferð núna.

Ég veit ekki hversu duglegur ég mun vera í því að blogga núna í sumar, mun örugglega ekkert nógu merkilegt gerast til þess að fólk nenni að lesa um það.

En nýjar myndir ef þið viljið skoða.

Björn Harđarson
2 athugasemdir

Ferđalag međ Mömmu og Kötu

18. júní 2007 klukkan 06:02
Halló, núna eru ég, mamma og Kata mætt til SLO eftir 2 vel heppnaða daga í San Francisco og einn dag á ferðalagi meðfram ströndinni frá SFS til SLO. Ég ætla ekki að segja frá ferðinni í smáatriðum en setti inn heilar 3 myndir á síðuna, tékk it please. Kata biður að heilsa Bjarka og Jónsa.. :) Mamma biður að heilsa þér Pabbi. Ég bið að heilsa þér Gísli.
  
Við munum stoppa hér í 2 daga og halda síðan áfram suður, Santa Barbara og LA.
Björn Harđarson
4 athugasemdir

Yosemite ţjóđgarđurinn

05. júní 2007 klukkan 12:58
Nú er því miður aldeilis farið að styttast í annan endann á dvöl minni hérna í Californiu. Núna er seinasta skólavikan og eftir hana er prófvika og þá er skólaárinu lokið. Ég mun samt stoppa aðeins lengur og fara upp og niður ströndina í fylgd mömmu og kötu. Það er svo mikið sem þarf að gera áður en skólinn er búinn, klára öll verkefni, læra fyrir próf, taka allt draslið mitt saman og reyna að nýta restina af tímanum í að njóta þess að vera hér í mögnuðu Californiu í góðum félagsskap.

Ég mun að öllum líkindum vanrækja þetta blogg að miklu leiti þangað til ég kem heim. Ég viðurkenni að bloggið hefur verið ansi slæmt seinustu mánuðina, aðallega vegna þess að það er alltaf eitthvað að gerast (aðallega frisbee-golf) og ég gef mér aldrei tíma til að setjast niður hérna inni og skrifa blogg.

Um seinustu helgi var síðasta ferðalag okkar, við skelltum okkur í Yosemite þjóðgarðinn, alveg gullfallegur þjóðgarður. Við vorum vel búnir, gengum upp á fjall í garðinum og tjölduðum og gistum þar eina nótt. Gangan var mjög erfið, mikill hiti og bratti, þannig að það var alveg frábært að komast á leiðarenda og njóta útsýnisins. Við væfluðumst síðan um þarna uppi megnið af næsta degi áður en var haldið niður aftur.

Niðri í Yosemite dalnum var allt krökt af túristum, feitir ameríkanar og hellingur af Himanshu-gengjum, sem nenna ekki að koma sér upp úr dalnum upp í fjöllin. Uppi í fjöllunum var nánast enginn en niðri í dalnum var fullt af fólki og bílum, varla hægt að finna bílastæði, mjög óspennandi aðstæður. Ég minntist á Himanshu-gengi og ætla aðeins að útskýra það fyrirbæri. Þessi Himanshu gengi standa saman af 10-15 ungum indverskum karlmönnum vel spreyjuðum með ilmvatni sem ráfa saman í hóp án leiðtoga, þannig að þessa torfa rétt silast áfram. Það voru einnig ófá Himanshu-gengi í Las Vegas man ég.

Ég ætti að fara að sofa aftur, klukkan er núna 6:00, útaf eitthverjum óskiljanlegum ástæðum gat ég ekki sofið (samt örugglega vegna þess að mig dreymir alltaf að ég sé að vinna við að selja aðgang að sturtunum upp í KA-heimili og stórt Himanshu-gengi kemur þar inn og tekur hið víðfræga Himanshu-combo (aka. shitandshower, samt ekki á sama tíma, það væri bara nasty)).

Æji, nú hætti ég þessu. Ég setti inn myndir frá Yosemite, tjekk it. 
Björn Harđarson
5 athugasemdir

... á jólum og páskum og játa međ soghljóđum ađ Jón gamli ţađ sé ţađ besta

24. maí 2007 klukkan 07:27

Ég skellti inn 2 albúmum núna, miklu þægilegra að segja frá hlutunum í gegnum myndirnar. Fyrsta albúmið er frá dögunum sem Axel dvaldi í SLO áður en hann fór aftur heim eftir Coachella. Hitt albúmið er frá góðum degi í Santa Maria (já, það er rétt hjá ykkur, Micheal Jackson réttarhöldin fóru fram í Santa Maria) þar sem við spiluðum smá Frisbee golf og fórum svo á kappaksturskeppni.

Við höfum verið að nýta tíman eins og við getum hérna, alltaf eitthvað að gerast. Seinustu helgi röltum við upp á fjall í Big Sur þjóðgarðinum. Það var nokkurskonar upphitun fyrir næstu helgi (sem er 3 daga helgi út af memorial day) því þá ætlum við að fara í Yosemite þjóðgarðinn og eyða þar 2 nóttum.

Í gær spilaði ég í annað skipti á ævinni golf á golfvelli, ég hafði einu sinni spilað áður á Ásbyrgis vellinum eftir vel heppnaðan dag í mælingum fyrir vegargerðina uppi hjá Dettifossi. Ég er kom sjálfum mér nokkuð á óvart og spilaði alveg ágætlega, enda er kominn af miklum golfurum, ber þar hæstan að nefna Bjössa frænda. 

Það er ótrúlegt hvað ég fylgist lítið með heimsmálunum eftir að ég kom hingað, ég fylgist svo lítið með fréttum að maður veit varla lengur hvað höfuðborgin í Þýskalandi heitir.

Smá getraun undir lokin: hver söng setninguna sem er í titlunum á þessari færslu og hvað heitir lagið. Ég veðja á að g bróðir muni sigra í þessari getraun.

Ég læt heyra betur í mér við tækifæri.

Björn Harđarson
6 athugasemdir

Coachella

14. maí 2007 klukkan 05:33

Loksins gef ég mér tíma til þess að setjast hérna niður og skrifa um hina mögnuðu tónlistarhátið Coachella sem við skelltum okkur á fyrir 2 vikum. Allt gekk eins og í sögu, við fórum eftir skóla á fimmtudeginum og brunuðum til LA þar sem við pikkuðum upp Axel frænda á Hollywood Boulevard og keyrðum síðan áleiðis til tónleikasvæðisins.

Hátíðin var haldin í Mojave eyðimörkinni ca. 1,5 tíma fjarlægð frá LA, mjög nálægt bænum Palm Springs. Hitinn var alveg rosalegur alla hátíðina og fór upp í 39 gráður á daginn. Áður en tónleikarnir byrjuðu á daginn reyndi maður að verjast sólinni og hitanum með því að sitja í skugga fyrir framan tjaldið og drekka vodka. Stemningin á hátíðinni var mjög góð, ég sá aldrei nein leiðindi og enga Ólafsfirðinga, enginn að reyna að slást eða með vesen. Í staðinn fyrir að drekka og vera með vesen voru langflestir að reykja marijuana og marijuana lyktin fannst næstum allstaðar á tónleikasvæðinu.

Fyrsta daginn sáum við mörg hress bönd, ma. Arctic Monkeys (náðu ekki alveg nógu vel til mín), Silversun Pickups (helvíti hresst Californiu tríó) og síðan voru Interpol og Björk aðal númerin þann daginn. Interpol kom mér skemmtilega á óvart, voru helvíti góðir og stemmningin mögnuð, eitt af mínum uppáhaldsböndum þessa dagana. Einnig kom mér á óvart hvað allir voru spenntir að sjá Björk, mér fannst hún fín og hefur áhugi minn á henni aukist eftir þessa tónleika.

Áður en við tónleikarnir byrjuðu næsta dag skelltum við okkur til nágrannabæjarins Indio og svo við gætum keypt okkur mat og Per gæti kúkað. Alveg nauðsynlegt að hafa nóg af vatni, maður drakk örugglega 5 lítra á dag.  

Annan daginn sáum við ma. Fratellis, Peter Björn and John (Svíarnir fengu það næstum því þegar þeir stigu á svið), Kings of Leon (algjörir meistarar þar á ferð, drullugóðir), Arcade Fire (komu skemmtilega á óvart, mjög hressir) og Red Hot Chili peppers.

Seinasta daginn þann 29.apríl var afmælisdagurinn minn og ég varð 25 ára (hálf fimmtugur), þetta var alveg magnaður afmælisdagur. Sáum meðal annars hrokagikkina í Mando Diao, The Kooks, The Roots (alveg magnaðir, helvíti gott show), Kaiser Chiefs, Placebo (vonbrigði hátíðarinnar, voru mjög slakir), Manu Chao (horfðum bara á þá því þeir voru á undan Rage).



Síðan byrjaði hasarinn og geðshræringin, Rage against the machine að halda sína fyrstu tónleika í sjö ár. Allt ætlaði að verða vitlaust þegar bandið steig á svið og Zach sagði "We are Rage against the machine from Los Angeles California" og síðan skelltu þeir sér beint í Testify. Allt varð brjálað, allir að hoppa og fá útrás. Hrikalegur Mosh-pitt myndaðist nálægt okkur þar sem fullt af 100kg mexíkönum gengu berserksgang. Eftir ca hálfa tónleikana ákvað ég að skella mér í pittinn, ég hélt ég réði nú létt við alla í pittinum og fór inn. Eftir nokkrar hrindingar, hopp og pústra fékk ég alveg svaka högg á kjálkan, eitthver hafði hlaupið á mig á fullum krafti. Ég ákvað að reyna að forðast pittin það sem eftir var tónleikanna. Þetta eru tvímælalaust þeir bestu tónleikar sem ég hef farið á, varla þurr blettur á mann eftir.

Við sváfum síðan í 4 tíma og keyrðum síðan til baka til SLO þar sem skólinn tók strax við, sumir fóru beint í fyrirlestur og ég fór beint í próf, gekk bara ótrúlega vel.

Ég hef þetta ekki lengra í bili.

Nýjar myndir ma. frá vikunni sem Axel eyddi hérna í SLO koma upp innan skamms.

Björn Harđarson
8 athugasemdir

Myndir og Megafestival

26. apríl 2007 klukkan 17:20
Eftir nokkra klukkutíma og einn verklegan tíma í Thermal system design þá mun ég ásamt 4 svíum leggja af stað til Los Angeles og þar munum við sækja Axel frænda á flugvöllin og leggja síðan öll af stað á Coachella festivalið. Mjög mikill spenningur er í gangi, enda engar smá hljómsveitir sem eru að spila. Ég kíkti á veðurspána fyrir helgina og er spáð 37 stiga hita, það er alveg hrikalega mikið. Við munum öll keyra í bíl sem sænsku stelpurnar hérna eiga, 6 manna bíll, en það verður frekar þröngt í bílnum. Við þorðum ekki að taka Swedmobilen í svo langa ferð, enda hefur maður þá tilfinningu að hann gæti dáið när som helst.

Ég setti inn nokkrar myndir frá seinustu vikum, albúmið heitir apríl 2007

Ég er farinn á Coachella.
Björn Harđarson
8 athugasemdir